A A A

Valmynd

Skólaslit

| 31. maí 2013
Nemendur í 10. bekk viđ útskriftina í dag - Mynd Malla Rós
Nemendur í 10. bekk viđ útskriftina í dag - Mynd Malla Rós
Grunnskólanum á Hólmavík var slitið við hátíðlega athöfn í kirkjunni í dag. Viðurkenningar voru veittar fyrir góða skólasókn, framfarir, góða ástundun, jákvætt viðmót og fleiri mikilvæga þætti.
Það var Lionsklúbburinn á Hólmavík sem gaf þessar viðurkenningar og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir þann hlýhug sem þeir bera til skólans fyrr og nú. Þeir nemendur sem hlutu þessa viðurkenningu voru: 
Díana Jórunn Pálsdóttir 4. bekk, Stefán Snær Ragnarsson 6. bekk,  Elísa Mjöll Sigurðardóttir 9. bekk og Fannar Freyr Snorrason 10. bekk. 
Einnig var veitt viðurkenning fyrir góðan árangur í dönsku. Brynja Karen Daníelsdóttir hlaut danska orðabók í viðurkenningarskyni. Gefandi var danska sendiráðið. Margrét Vera Mánadóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan námsárangur og hæstu meðaleinkunn. Gefandi var Lionsklúbburinn á Hólmavík. 


Nemendur í 10. bekk rifjuðu upp skólagöngu sína við skólann og heiðruðu kennara sína með blómum.
Kristín Lilja Sverrisdóttir nemandi í 9. bekk flutti tónlist fyrir gesti á samt kennaranum sínum honum Jóni Ingimundarsyni.


Við óskum nemendum í 10. bekk velfarnaðar nú þegar þau halda á vit nýrra ævintýra.

Gleðilegt sumar. 

Vorhátíđ

| 29. maí 2013
« 1 af 2 »
Undanfarna daga hafa nemendur og starfsfólk brotið upp hefðbundna skóladaga með mikilli listsköpun. Hér hefur verið málað, smíðað, saumað, samin tónlist, leikið, dansað, endurunnið og ýmislegt fleira. Afrakstur þessarar miklu vinnu mátti sjá í dag á viðamikilli sýningu á og við skólann. Hér var sett upp miðaldaþrop með þrælum, trölli, víkingum og konungbornu fólki. Við vorum viðstödd brúðkaup, sáum mikinn bardaga, þjóf hnupla og fólk að störfum á markaðstorgi. Gestir tóku þátt í hirðdansi, kepptu í skilmingum og kubbi.
Það er óhætt að segja að sýningin hafi tekist mjög vel og eiga nemendur og starfsfólk mikið hrós skilið fyrir skemmtilega sýningu.
Myndir frá sýningunni

Tónleikar Tónskólans

| 27. maí 2013
Í kvöld, mánudaginn 27. maí og annaðkvöld, þriðjudaginn 28. maí verða vortónleikar Tónskólans á Hólmavík haldnir í Hólmavíkurkirkju. Þar munu nemendur Tónskólnas koma fram og flytja afrakstur vetrarins. Allir eru hvattir til að koma og hlíða á undurfagra tóna nemenda. Báðir tónleikarnir hefjast kl. 20:00

Síđustu dagar skólaársins

| 27. maí 2013
Sælir kæru foreldrar

Undanfarna daga hafa nemendur Grunnskólans verið að undirbúa vorhátíð sem haldin verður miðvikudaginn 29. maí. Skólinn hefur verið undirlagður af sköpun í hinum ýmsu greinum. Hér hefur verið málað, smíðað, saumað, samin tónlist, leikið, dansað, endurunnið og ýmislegt fleira. Á miðvikudaginn 29. maí verður lokaafurð þessarar vinnu sýnd og hefst sýningin kl. 10.00 og stendur til um kl. 12.30. Nemendur eiga að mæta í skólann kl. 8.10 eins og vanalega. Fjórir hópar sýna atriði á fjórum stöðvum í nágrenni skólans, eitt atriði er sýnt í einu. Nánari tímasetning á atriðunum verður send út eftir genaralprufu sem verður á morgun, þriðjudag. Foreldrar og aðrir gestir eru hvattir til að mæta og taka þátt í sýningunni með okkur. Munið að klæða ykkur og börnin sérstaklega vel, því sumarið er víst ekki alveg komið. Skóli verður fram að hádegi þann dag og fer skólabíllinn heim eftir hádegismat eða uppúr kl. 13.00. Opið verður í Skólaskjóli fyrir þau börn sem þar eiga athvarf eftir hádegi og er þetta jafnframt síðasti dagur sem Skólaskjól er opið þetta skólaárið. Á fimmtudaginn 30. maí er hinn hefðbundni vordagur. Hann hefst einnig klukkan 10.00 og eiga nemendur að mæta kl. 10.00. Þar verður ýmislegt á boðstólnum s.s. spákona, kraftakeppni, pylsur, sápukúlur, krítar og andlitsmálun. Deginum lýkur um kl. 12.30 og þá mun skólabíllinn leggja af stað heim. Á föstudaginn 31. maí eru skólaslit í Hólmavíkurkirkju og hefst athöfnin kl. 12.00. Athöfnin tekur um klukkutíma. Skólaakstur verður þennan dag en miðast við að börnin verði mætt kl. 12 í athöfnina. Skólabíllin leggur af stað heim að athöfn lokinni eða um kl. 13.00.

Lausar stöđur fyrir nćsta skólaár

| 13. maí 2013
Við Grunn- og Tónskólann á Hólmavík vantar kennara og stuðningsfulltrúa til starfa skólaárið 2013-2014


  • Meðal kennslugreina er íslenska, stærðfræði, tungumál og íþróttir.
  • Einnig vantar stuðningsfulltrúa til að vinna með nemendum á skólatíma og í lengdri viðveru nemenda.
  • Við tónskólann eru lausar tvær stöður tónlistarkennara.

Umsækjendur um kennarastarf þurfa að hafa kennsluréttindi. Leitað er eftir einstaklingum með góða skipulagshæfileika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi eru mikilvægir eiginleikar. Umsækjendur skulu hafa hreint sakarvottorð.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum LN og KÍ þegar um kennarastöðu er að ræða en samkvæmt kjarasamningum á almennum vinnumarkaði vegna stöðu stuðningsfulltrúa.

Umsóknarfrestur er til 18. maí 2012.


Nánari upplýsingar veita
Hulda Ingibjörg Rafnarsdóttir, skólastjóri, sími 451 3129 og 698 0929
Ingibjörg Emilsdóttir, aðstoðarskólastjóri, sími 451 3129 og 695 4743

Umsóknum með starfsferilsskrá og afrit prófskírteina þar sem við á ásamt upplýsingum um meðmælendur sendist Huldu I. Rafnarsdóttur á skolastjorar@holmavik.is eða Grunnskólinn á Hólmavík, Skólabraut 20-22, 510 Hólmavík


Grunnskólinn á Hólmavík er samrekinn grunn- og tónskóli með um 80 nemendum í 1. - 10. bekk þar sem lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám og samvinnu. Skólinn er Grænfánaskóli og er áhersla lögð á umhverfismennt og útinám. Við skólann starfar 20 manna samhentur hópur. Félagsmiðstöð ungmenna hefur aðstöðu í skólanum.
Í Strandabyggð búa tæplega 520 manns þar af 380 manns í þéttbýliskjarnanum Hólmavík. Á staðnum er öll almenn þjónusta, góður leikskóli og glæsileg íþróttamiðstöð ásamt sundlaug með aðstöðu fyrir alla aldurshópa. Fjölbreyttir útivistarmöguleikar eru til staðar og náttúrufegurð mikil. Hólmavík er í einungis 233 km fjarlægð frá Reykjavík sem er um 3 tíma akstur.

Allir öruggir heim

| 08. maí 2013
Nemendur í 1. bekk í vestunum góđu ásamt Björk, Sigurđi og Úlfari félögum úr Dagrenningu
Nemendur í 1. bekk í vestunum góđu ásamt Björk, Sigurđi og Úlfari félögum úr Dagrenningu
Í morgun komu þrír félagsmenn úr björgunarsveitinni Dagrenningu á Hólmavík í heimsókn til 1. bekkjar. Tilefnið var að færa skólanum að gjöf endurskinsvesti til notkunar fyrir 1. bekk í vettvangsferðum skólans.

Verkefni hefur fengið heitið Allir öruggir heim en ásamt Landsbjörgu standa eftirtalin fyrirtæki að verkefninu: Alcoa Fjarðarál, Dynjandi ehf, EFLA verkfræðistofa, Efling stéttafélag, HB Grandi, Isavia, Landsvirkjun, Neyðarlínan, Tryggingamiðstöðin, Umferðarstofa og Þekking.

Við viljum þakka kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf sem mun koma sér vel í framtíðinni.

Nánar má lesa um verkefnið á heimasíðu Slysavarnarfélagsins Landsbjargar 

Söfnunin Börn hjálpa börnum

| 07. maí 2013
Síðastliðnar þrjár vikur hafa nemendur í 6. bekk tekið þátt í söfnun fyrir hjálparstrarf ABC og söfnuðu alls 41.588 kr.
Þeir nemendur sem tóku þátt í söfnuninni voru: Bríanna Jewel Johnson, Daníel Freyr Newton og Stefán Snær Ragnarsson.

Þetta er 16. árið í röð sem ABC hjálparstarf stendur fyrir slíkri söfnun og í gegnum árin hafa íslensk börn safnað fé fyrir skólabyggingum, heimavistum, húsgögnum, námsbókum, skólamáltíðum og stuðningi við fátæk börn. Í ár verður safnað fyrir brýnustu nauðsynjum á heimavistum og skólum ABC m.a. skólabókum fyrir fátæk börn í Pakistan og byggingu heimavistar og skóla fyrir götubörn í Kenýa.

Við þökkum öllum þeim sem gáfu í söfnunina. 

Vinningshafar í pizzuhappdrćtti 9. og 10. bekkjar

| 29. apríl 2013
Nemendur í 9. og 10. bekk stóðu fyrir pizzuhappdrætti til styrktar ferð þeirra á Laugar í Sælingsdal.
Alls seldust um 60 miðar. Dregið var úr seldum miðum og komu vinningar á eftirtalin númer:
37, 45, 63, 76, 90 og 112. 

Vinningshöfum verður afhent gjafabréf í næstu viku.

Kærar þakkir fyrir stuðninginn. 

Nýr umsjónarmađur bókasafns

| 18. apríl 2013
Lára Jónsdóttir hefur verið ráðin umsjónarmaður Héraðsbókasafnsins og skólabókasafns Grunnskólans á Hólmavík.
Lára hefur fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu en hún starfaði t.d. um árabil sem fulltrúi hjá Strandabyggð. Lára er í námshléi en hún var í námi við kennaradeild HA.

Lára hefur þegar hafið störf við hlið Kristínar Sigurrósar sem lætur af störfum þann 19. apríl.

Við bjóðum Láru velkomna til starfa og óskum Kristínu Sigurrós velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi.

Danssýning

| 11. apríl 2013
Danssýning að loknum dansnámskeiðum verður á morgun, föstudaginn 9. mars kl. 15.00 í Íþróttamiðstöðinni.

Allir eru hjartanlega velkomnir á sýninguna


Nemendur mæta á morgun sem hér segir í danskennslu og á danssýningu:
1. - 3. bekkur kl. 13.10-14.00
4. - 10. bekkur kl. 14.10-15.00
Danssýning 1. - 10. bekkur kl. 15.00

 

Eldri fćrslur

Bekkjavefir

Atburđadagatal

« Október 2025 »
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nćstu atburđir